Ketubjörgin séð úr lofti

Mynd af Ketubjörgum tekin með flygildi. Mynd/Skjáskot úr myndskeiði af Facebook-síðu Róberts Daníels Jónssonar.
Mynd af Ketubjörgum tekin með flygildi. Mynd/Skjáskot úr myndskeiði af Facebook-síðu Róberts Daníels Jónssonar.

Undanfarið hefur verið fylgst grannt með stórri sprungu sem myndast hefur í Ketubjörgum á Skaga og hefur hún verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðan í byrjun síðasta árs. Bjargsneiðin, sem losnað hefur frá, stendur enn og náði Róbert Daníel Jónsson tilkomumiklum myndum af bjarginu í gær með notkun flygildis. Auk þess að sýna bjargsneiðina frá nýju sjónarhorni þá sýna myndirnar það mikla landbrot sem á sér stað í bjarginu.

Sprungan er í björgunum í Syðri-Bjargarvík en Ketubjörgin eru vinsæll útsýnis- og áningarstaður við vestanverðan Skagafjörð. Bjargsneiðin sem losnað hefur frá er um átta metrar á breidd og 50-60 metrar á hæð.

Hrefna Gunnsteinsdóttir, ábúandi á Ketu, varð fyrst vör við sprunguna vorið 2014. Í samtali við morgunblaðið sl. vor sagði hún að mikið landbrot hefði átt sér stað í bjarginu í gegnum tíðina en þar væri nú meiri umferð ferðamanna á svæðinu en hún hefði nokkurn tímann kynnst á Skaga, bæði sumar og vetur. Í viðtalinu sagðist Hrefna óttast um öryggi ferðamanna og búfénaðar á svæðinu og vonaðist til að bjargið hryndi þegar frost færi úr jörð, en það gekk nú ekki eftir.

Við fjölskyldan skoðuðum Ketubjörg út á Skaga í dag. Rosalega fallegt svæði. Í dag er ein djúp sprunga í bjarginu sem stækkar stöðugt og aðeins tímaspursmál hvenær stórt stykki hrynur úr björgunum. Það má sjá ummerki um svipuð hrun í fjörunni undir björgunum, mjög vígalegt að sjá.

Posted by Róbert Daníel Jónsson on Sunday, April 3, 2016

Fleiri fréttir