Kiwanis skorar á Lionsklúbbinn Höfða Hofsósi
feykir.is
Skagafjörður
27.03.2014
kl. 09.53
Kiwanisklúbburinn Drangey hefur boðið fimm þúsund krónur í Mottumars slaufuna sem félagar úr Karlakórnum Heimi gáfu til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar á dögunum. Kiwanisklúbburinn skorar á Lionsklúbbinn Höfða á Hofsósi að toppa boð þeirra.
Nú er um að gera að bjóða í slaufuna og um leið styrkja gott málefni. Boð í slaufuna eiga að sendast á netfangið feykir@feykir.is.