Kiwanisklúbburinn Drangey styrkir ljósakaup Sauðárkrókskirkju

Á jólafundi Kiwanisklúbbsins Drangeyjar á Sauðárkróki, sem haldinn var 12. desember sl., var Sauðárkrókskirkju formlega afhent styrkur frá klúbbnum upp á 550 þúsund krónur. Fénu var ætlað að verja í endurnýjun á ljósum kringum kirkjuna og framan við safnaðarheimilið.
Mynd 2: Fín eru ljósin sem birta upp kirkju og safnaðarheimilið. Mynd PF.
Fram kom við afhendinguna, sem fram fór í Ljósheimum að viðstöddu fjölmenni, að gömlu ljósin hafi verið orðin léleg og mörg hver ónýt þar sem ekki fengust hlutir til að viðhalda þeim. Stjórn safnaðarnefndar leitaði fyrir sér með styrk til verksins og voru Kiwanismenn fúsir til að leggja fram fjármuni enda kom fram í ræðu Ingimars Jóhannssonar, af þessu tilefni, að Kiwanisklúbburinn hafi verið góður bakhjarl kirkjunnar lengi. Ljósin eru þegar komin upp og búin að sanna ágæti sitt í svartasta skammdeginu.
Þess má og geta að félagar í Kiwanisklúbbnum halda utan um uppsetningu og viðhaldi á ljósakrossum í kirkjugarðinum á Nöfum og hafa staðið vaktina alla laugardaga frá byrjun nóvember.
/PF