Kjarasamningar kynntir á Mælifelli
feykir.is
Skagafjörður
11.05.2011
kl. 15.01
Kynningarfundur um nýgerða kjarasamninga aðildarfélaga ASÍ og SA verður haldinn á Mælifelli Sauðárkróki í dag miðvikudaginn 11. maí og hefst hann kl.18:00
Á fundinn mætir Ólafur Darri Andrason aðalhagfræðingur ASÍ og fer yfir samninginn.
Fundarboðendur eru:
Aldan stéttarfélag
Verslunarmannafélag Skagafjarðar
Iðnsveinafélag Skagafjarðar.
