Kjarasamningar samþykktir með miklum meirihluta

Atkvæðagreiðslu vegna nýgerðra kjarasamninga aðildafélaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnulífsins er lokið og úrslit liggja nú fyrir.

Hjá Verslunarmannafélagi Skagafjarðar fór fram rafræn kosning sem hófst þann 11. maí og lauk á hádegi þann 25. maí og var samningurinn samþykktur. Kjörsókn var tæp 20 % en 188 manns voru á kjörskrá. Tæp 92% sögðu já en rúmlega 8 % sögðu nei.

Hjá Öldunni stéttarfélagi fór fram póstkostning frá 11. maí og lauk henni kl. 17 þann 24. maí. Félagsmenn Öldunnar samþykktu samninginn, 83 % sögðu já en 15 % sögðu nei. Auðir og ógildir seðlar voru 2 %. Alls voru 544 á kjörskrá en kjörsókn var 26 %.

Fleiri fréttir