Kjölfestan er í fólkinu - í öllu hinu er óvissa :: Framúrskarandi fyrirtæki FISK Seafood

Margar litlar byggingar munu víkja fyrir stækkun frystihússins þar sem allt snýst um hraðvirkar og beinar vinnslulínur sem Friðbjörn hefur gjarnan líkt við muninn á hringvöllum og skeiðbrautum hestaíþróttanna. Nýbyggingin fyrir miðri mynd. Mynd  Stoð ehf.
Margar litlar byggingar munu víkja fyrir stækkun frystihússins þar sem allt snýst um hraðvirkar og beinar vinnslulínur sem Friðbjörn hefur gjarnan líkt við muninn á hringvöllum og skeiðbrautum hestaíþróttanna. Nýbyggingin fyrir miðri mynd. Mynd Stoð ehf.

FISK Seafood, sem stofnað var árið 1955, hefur vaxið hratt á undanförnum árum og tekið sér stöðu á meðal stærstu sjávarútvegsfyrirtækja landsins. Félagið hefur byggst upp með kaupum og samruna nokkurra félaga á löngum tíma, m.a. Fiskiðju Sauðárkróks, Útgerðarfélags Skagfirðinga, Hraðfrystihússins Skjaldar, Hraðfrystihússins á Hofsósi, Skagstrendings, Hraðfrystihúss Grundarfjarðar og Soffaníasar Cecilssonar sem rekur umfangsmikla saltfiskverkun í Grundarfirði.

FISK Seafood starfar á öllum stigum virðiskeðjunnar, þ.e. í veiðum, vinnslu og sölu afurðanna ásamt útflutningi þeirra. Sérstaða félagsins í íslenskum sjávarútvegi er m.a. fólgin í dreifðu eignarhaldi þess en eigandi FISK Seafood er Kaupfélag Skagfirðinga sem er í jafnri eigu ríflega 1.500 félagsmanna í Skagafirðinum. Stjórnarformaður er Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri, og framkvæmdastjóri frá árinu 2018 er Friðbjörn Ásbjörnsson.

„Stjórn félagsins hefur tekið mjög virkan þátt í umbreytingum þess á liðnum árum og það hefur skipt mig persónulega miklu máli að hafa frá fyrsta degi notið þessarar samheldni og stuðnings í öllu því sem við höfum tekið okkur fyrir hendur,“ segir Friðbjörn. „Þetta er mikið einvalalið en auk Þórólfs eru í stjórn félagsins þau Bjarni Maronsson, Herdís Á. Sæmundardóttir, Ingileif Oddsdóttir og Sigurjón Rúnar Rafnsson. Við hittumst a.m.k. mánaðarlega og förum yfir stórt og smátt í rekstrinum. Það eru að mínu mati mikil verðmæti í því fólgin.“

Friðbjörn heldur áfram í yfirferð sinni yfir aðalatriðin í rekstri FISK Seafood. „Hver dagur hjá okkur er á margan hátt sjálfstætt ævintýri“, segir hann. „Við grundvöllum í raun alla okkar starfsemi á því þrennu að vera traustur vinnuveitandi yfir 260 starfsmanna, góður nágranni nærsamfélagsins hér í Skagafirði og nærgætinn notandi þeirrar takmörkuðu auðlindar sem við erum að nýta í sjónum. Virðingin fyrir því lífríki felst meðal annars í endalausri viðleitni til þess að hámarka aflaverðmætin og í þeim efnum dugar ekki einungis að vera á réttri leið heldur þurfum við líka að vera á réttum hraða. Þess vegna höfum við látið hendur standa fram úr ermum á undanförnum árum og munum gera það áfram eftir bestu getu.“

Styrkur liðsheildarinnar

Friðbjörn segir að enda þótt segja megi að mestu verðmæti félagsins felist í veiðiheimildum, skipum, frystihúsum og öðrum mannvirkjum væru þau lítils virði án starfsfólksins. Hjá þeim hópi hefur byggst upp mikil þekking og reynsla á undanförnum árum og áratugum sem nýtist félaginu í blíðu og stríðu alla daga ársins. „Við höfum keypt þorskígildistonn fyrir marga milljarða á undanförnum árum. Sú fjárfesting hefur vissulega skilað sér vel en einungis vegna þeirrar liðsheildar sem hefur nýtt tækifærin afar vel bæði til sjós og lands.

Það eru margir óvissuþættir í rekstrinum sem við höfum ekkert vald á. Fiskimiðin geta verið misjafnlega gjöful á milli ára og heimsmarkaðurinn er sömuleiðis óútreiknanlegur hvað varðar framboð, eftirspurn og verðlagningu. Ákvarðanir stjórnvalda um aflaheimildir í gegnum ráðgjöf Hafró á hverjum tíma eru líka gríðarlega stór áhættuþáttur sem við ráðum engu um frekar en t.d. gæftum veðurguðanna sem alla daga stýra miklu um tækifærin til sjósóknar. Hins vegar er þéttur hópur þrautreynds starfsfólks, sem getur lagað sig hratt að breyttum aðstæðum, á margan hátt álíka verðmæti eins og inneign á bankabók þótti a.m.k. í gamla daga. Í Covidaðstæðum síðustu missera hefur t.d. reynt mikið á þessa aðlögunarhæfni og ég er stoltur af því hvernig starfsfólkið okkar hefur hjálpað FISK Seafood í gegnum þann skafl sem vonandi fer loks að bráðna.“

Stórar fjárfestingar framundan

Friðbjörn Ásbjörnsson hyggst halda uppbyggingunni
ótrauður áfram án mikillar skuldsetningar enda sé
eiginfjárstaða FiSK Seafood ákaflega sterk. Aðsend mynd.

Engum sem fylgst hefur með starfsemi FISK Seafood á undanförnum árum, og þar á meðal okkur hér á Feyki, dylst að mikill árangur hefur náðst í uppbyggingu félagsins. Aðspurður segir Friðbjörn margar farsælar og vel heppnaðar ákvarðanir að baki en það séu ekki síður brýn verkefni og spennandi tækifæri framundan. Þau skipti ekki einungis máli fyrir FISK Seafood heldur allt samfélagið hér á Sauðárkróki og í Skagafirði. Hann segir fyrirhugaða skuldsetningu vegna þeirra framkvæmda í lágmarki. „Okkur hefur gengið afskaplega vel og árlegur hagnaður FISK Seafood og dótturfélaga frá rekstri hefur numið ríflega þremur milljörðum króna að meðaltali síðustu þrjú árin. Fyrir vikið er eigið fé FISK Seafood orðið um 35 milljarðar króna og í því er auðvitað mikill styrkur fólginn. Við höfum afl til þess að fara í stór og smá verkefni án þess að stofna til mikilla skulda og það greiðir að sjálfsögðu leiðina fyrir okkur að nýjum sóknarfærum til aukinnar verðmætasköpunar,“ segir Friðbjörn og er augljóslega bæði sáttur við árangurinn og staðráðinn í að halda uppbyggingunni áfram.

„Stærstu verkefnin okkar næstu misserin og árin eru annars vegar bygging þess sem við köllum „frystihús framtíðarinnar“ á hafnarsvæði okkar og hins vegar endurnýjun í togaraflotanum,“ segir Friðbjörn. „Nýtt frystihús mun bæði auka gæði vinnslunnar til muna og jafnframt lækka tilkostnaðinn og skipta þannig miklu máli fyrir samkeppnishæfni FISK Seafood á alþjóðlegum mörkuðum. Nýsmíði togara sem mætir öllum ströngustu nútímakröfum á sviði öryggismála, umhverfisþátta og afkastagetu, m.a. með því að veiða í tvö troll í stað eins, er sömuleiðis ávísun á mikla hagræðingu og um leið sterkari stöðu á heimsmarkaðnum sem við keppum á alla daga.“

Á loftmynd sem hér er birt má sjá hvernig frystihúsinu er komið fyrir í stað fjölmargra eldri og smærri bygginga sem e.t.v. má segja að skilað hafi sínu eftir langa og mikla notkun. Sveitarfélagið hefur samþykkt þessar fyrirhuguðu framkvæmdir og sömuleiðis tekið að sér samskiptin við ríkisvaldið til þess að leysa úr þeim húsnæðisvanda Hólaskóla sem skapast þegar núverandi aðstaða hans í húsakynnum FISK Seafood víkur fyrir þessari stóru nýbyggingu. Félagið hefur hýst hluta af starfsemi skólans í langan tíma en samningar þar að lútandi hafa engir verið í mörg ár og segir Friðbjörn að nú verði opinberir aðilar einfaldlega að taka við þessu kefli. Lengur verði því ekki frestað að endurskipuleggja og byggja upp á þessu svæði.

Nýja frystihúsið nýtir ekki einasta öll nýjustu hagræðingartækifæri til hins ýtrasta heldur gjörbreytir það vinnuumhverfi starfsfólksins. „Vinnustaðurinn verður á margan hátt betri,“ segir Friðbjörn. „Flæðið verður hraðara og kuldinn við færiböndin getur því minnkað, störfin verða léttari og þungur burður minni, öll ytri umgjörð batnar til muna og áfram mætti lengi telja. Sömu sjónarmið eru að baki endurnýjun í skipaflotanum. Fyrir utan alls kyns hagkvæmnisástæður eru öryggi og aðbúnaður áhafna þar í fyrirrúmi. Leiðin að fyrsta flokks starfsfólki er að vera fyrsta flokks vinnustaður. Við viljum vera það.“

Uppbyggingin forsenda samkeppnishæfni

Friðbjörn lítur ánægður um öxl og einbeittur fram á veginn. „Við höfum fjárfest í auknum umsvifum, lagt niður óarðbær verkefni á borð við bleikjueldið á Hólum og í Þorlákshöfn, dregið okkur út úr rækjuvinnslu í Grundarfirði, losað um eignarhald ýmissa mannvirkja til þess að koma þeim í arðbæra endurnýjun lífdaga, m.a. á Hofsósi og Skagaströnd, og gert fjölmargar breytingar til framfara í stjórnunarháttum fyrirtækisins. Forsenda velgengni er samkeppnishæfni og lykillinn að henni eru stöðugar framfarir og endurbætur,“ segir Friðbjörn. „Uppbyggingin er fjárfesting í framtíð þar sem við þurfum alla daga að standa jafnfætis alþjóðlegum risafyrirtækjum og megum aldrei dragast aftur úr.“

Endurnýjun í skipaflotanum hefur þau meginmarkmið
að auka veiðigetu, bæta umhverfisþætti og efla öryggi
skipverja. Frá vinstri: Bjarni Jóhannesson, Þiðrik Unason,
Guðmundur Sveinsson og Óskar Páll Ágústsson.
Ljósm. Davíð Már Sigurðsson.

Friðbjörn segir það í senn mikilvægt að einbeita sér að þeim þáttum sem FISK Seafood hafi mikla þekkingu á en að hafa jafnframt ekki öll eggin í sömu körfunni. „Við erum t.d. ekki í uppsjávarfiski eins og loðnu, síld og makríl en tengjumst þeim geira m.a. í gegnum þriðjungs eignarhlut okkar í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum. Mér finnst sú fjárfesting okkar vera vel heppnuð. Sama gildir um sölumálin. Enda þótt við sinnum þeim sjálf í talsverðum mæli til viðbótar við veiðar okkar og vinnslu tengjumst við í gegnum tíu prósenta eignarhald okkar öflugu alþjóðlegu söluneti, Iceland Seafood International, og umtalsverð viðskipti þar í gegn hafa skipt okkur miklu máli.“

Í grunninn byggist allur rekstur FISK Seafood á fiskveiðum og um leið fiskveiðiheimildum. Í þeim hefur félagið fjárfest markvisst og af meira afli en nokkru sinni fyrr á allra síðustu árum. „Við jukum verulega við kvótaeign okkar á árinu 2020 og bættum á síðasta ári enn frekar í með því að færa okkur í auknum mæli inn á útgerð krókaaflamarksbáta og vertíðarbáta“ segir Friðbjörn og heldur áfram. „Stærstu skrefin í þeim efnum voru kaup á Ölduósi ehf. á Höfn í Hornafirði og krókabáti félagsins sem nú heitir því góða skagfirska nafni Lundey SK-3, kaup á 60% hlut í útgerð vertíðarbátsins Steinunnar SH-167 í Ólafsvík og nú síðast leigu á útgerð Nesvers og krókabátsins Tryggva Eðvarðs SH-2. Kvóti þessara báta hefur reynst afar mikilvægur í þeim samdrætti sem orðið hefur í veiðiheimildum togaranna. Það var verulegt högg að fá skerðingu upp á 2.637 tonn þorskígilda hjá togurunum, sem samsvarar um fimm vikna veiði togara félagsins og sambærilegu stoppi fiskvinnslna vegna hráefnisskorts. Við náðum hins vegar að koma með krók á móti bragði ef svo má segja með því að færa okkur meira yfir í smærri bátana. Alls eru aflaheimildir vertíðar- og krókabátanna nú orðnar um 2.624 tonn þorskígilda eða ríflega 11% af veiðiheimildum FISK Seafood og um leið aukum við öryggið í aðfangakeðjunni talsvert. Svo er það auðvitað bónus að krókabátarnir bæta heilmiklu lífi við höfnina og um leið í bæjarbraginn hér á Sauðárkróki.“

Mikilvægt átak í innra starfinu

 

Við höldum áfram að tala um fjárfestingarverkefni FISK Seafood og talið berst að niðurrifi mannvirkja á Sandeyri og framkvæmdum vegna nýs fiskmarkaðar á Sauðárkróki. „Fiskmarkaðurinn á vafalaust eftir að setja sitt mark eins og krókabátarnir, hafnarframkvæmdirnar, endurnýjun togaraflotans og margt fleira sem sýnilegt verður alla daga, á mannlífið í bænum. Það er gaman að geta lagt mikið af mörkum til ásýndar bæjarins en ég verð líka að segja að það er margt í innra starfi okkar sem kannski er ósýnilegt en hefur tekið miklum breytingum sem skipta framtíðarrekstur okkar, og um leið sveitarfélagsins, miklu máli,“ segir Friðbjörn. „Þar hef ég ekki síst í huga mikla vinnu sem við höfum sett í endurskipulagningu á ýmsum þáttum í stjórnun félagsins, svokallaða stjórnháttaryfirlýsingu, sem tók gildi sl. vor. Hún er gríðarlega yfirgripsmikill og nákvæmur leiðarvísir þar sem m.a. er tekið á jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu okkar, persónuverndarstefnu, öryggisstefnu, vinnuáætlun og viðbragðaáætlun vegna eineltis, kynferðislegu og kynbundnu áreiti og ofbeldi, umhverfisstefnu og sjálfbærri nýtingu fiskistofna, starfsreglum stjórnar, innra eftirliti og áhættustýringu o.m. fl.“

Friðbjörn er ánægður með árin að baki og bjartsýnn á framtíðina. „Við náðum að gera sjóklárt, ef svo má segja, fyrir Covidkreppuna og höfum heilmikið afl til þess að takast á við framtíðina. Sauðárkrókur getur líka styrkt sig verulega í framtíðinni sem sjávarútvegspláss og leiðandi höfn á Norðurlandi. Fyrirhugaðar stækkunarframkvæmdir, varnargarðar og tilkoma dráttarbátsins munu bæði styrkja hafnarstarfsemina og öryggismál hennar til mikilla muna. Ég er viss um að í sameiningu geta FISK Seafood, Kaupfélagið og sveitarfélagið lyft Grettistaki í verðmætasköpun í sjávarútvegi héðan frá Sauðárkróki og ég hlakka mikið til þess að taka þátt í því verkefni,“ segir Friðbjörn að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir