Klippiskúrinn opnar eftir viku

Ný hársnyrtistofa, Klippiskúrinn, opnar á Sauðárkróki á fimmtudaginn í næstu viku. Stofan opnar því EKKI í dag eins og misritað var í Sjónhorninu í dag, en dagsetningin þar er hins vegar rétt því opnað verður fimmtudaginn 4. september. Beðist er velvirðingar á þessari misritun.

Boðið verður upp á flott opnunartilboð á klippingu og vörum, eins og segir í auglýsingunni. Stofan er staðsett á Ægisstíg 4 og það eru þær Jónína Róbertsdóttir og Pála Rún Pálsdóttir sem munu hafa hendur í hári Skagfirðinga á hinni nýju stofu.

Fleiri fréttir