Knattspyrnuþjálfari óskast á Tangann
Umf. Kormákur auglýsir eftir knattspyrnuþjálfara eða þjálfurum fyrir yngri flokka (18 ára og yngri) í sumar. Starfið felst í umsjón með æfingum og að fara með liðin á mót. Krakkar 14 ára og yngri hafa undanfarin ár farið á mót á Blönduósi og 12 ára og yngri á Króksmót á Sauðárkróki.
Krakkar 11 - 18 ára hafa farið á Unglingalandsmót sem nú verður á Egilsstöðum um Verslunarmannahelgina og 3., 4. og 5. flokkur (15-16, 13-14 og 11-12) drengja eru skráðir til keppni á Íslandsmóti 7 manna liða.
Einnig er biðlað til foreldra að gefa sig fram til að vera þjálfunum til halds og trausts. Allar upplýsingar veitir Oddur Sigurðarson í síma 898 24 13 eða í gegnum netfangið kormakur@simnet.is þar sem umsóknum skal skilað einnig skilað fyrir 30. apríl eða bréflega til Umf. Kormáks, Pósthólf 97, 530 Hvammstanga.