Kokkalandsliðið á Ólympíuleika 2012 - Styrktarkvöldverður í kvöld

Kokkalandsliðið með Þráinn Vigfússon í broddi fylkingar er komið á fullt en stefnan er tekin á Ólympíuleika í matreiðslu í Erfurt í Þýskalandi í október á næsta ári. Sérstakur styrktarkvöldverður verður haldinn á Lava Restaurant í Bláa Lóninu í kvöld 30. september fyrir liðið sem  einnig er liður í undirbúningi fyrir Ólympíuleikana.

 

Kvöldverðurinn er einkar glæsilegur en boðið verður upp á keppnismatseðil Kokkalandsliðsins, ásamt fersku innslagi frá Ungkokkum með einstakt íslenskt hráefni í öndvegi.

Matseðillinn lítur svona út:

  • Laxa og humar rúlla með piparrótar „remúlaði" sýrðu haust grænmeti, laxahrognum og dilli.
  • Íslenskt hvannar sinnep, piparrót og ediksgel borið fram með rótargrænmetisskífum, karsa og krydd-hnetum.
  • Lambahryggvöðvi, tunga, hjarta, bris og skanki ásamt villtum sveppum, nýjum íslensku gulrótum, rauðum berjum og lambasoðs gljáa.
  • Bakaður ísbúi, hunang og klettasalat.
  • Bláber og hvítt súkkulaði krem með skyr krapís, greni marens og bláberja- og greni saft.

Verðið er 18.500 kr. en innifalið er fordrykkur og 5 rétta seðill ásamt borðvínum.

 

Í miðjum undirbúningi fyrir nokkru sendi Feykir Þráni nokkrar spurningar og fyrst var spurt hvernig gengi með veisluna? -Við erum bara klára að selja í Dinnerinn.

Hvað eigið þið von á mörgum?
-Við eigum von á 270-300manns.

Hvernig undirbúið þið ykkur undir Ólympíukeppni (nú er ár þangað til keppnin fer fram?)
-Undirbúningur byrjar svona 1 1/2 ári fyrir keppni. Með fundum og skipulagningu á liðinu. Það sem keppt er í er kalt borð sem skiptist í 3 hluta, Forrétti, pinnamat og fiskfat, - Aðalrétti, 5rétta matseðil, grænmetismatseðil og svo dessertar, show sykurstykki, konfekt svo er það heiti maturinn (6 kokkar elda fyrir 110manns á 4 tímum). Við æfum og þróum réttina á þessum tíma.

Hvað eru margir í liðinu? –Í liðinu eru12 manns.

Hvað er að frétta af þér sjálfum og Kolabrautinni, er mikið að gera? -Já, það er búið að vera mjög gott að gera og er bara mjög mikið framundan.

Nú varstu að leita eftir matreiðslunema. Fannstu einhvern? -Já, ég náði í einn úr sveitinni.

Hve margir vinna á Kolabrautinni? –Hér vinna 25 manns, 13 í eldhúsi og 12 í sal.

Er Kolabrautin opin fyrir almenning eða þarf maður að vera að gera eitthvað menningarlegt í Hörpunni til að fá sér að borða?
-Það getur hver sem er komið og borðað hjá okkur, hvort sem viðkomandi er að fara á einhverja sýningu eða ekki.

Fleiri fréttir