Kökusmakk í Sauðárkróksbakaríi

Það voru heppnir vegfarendur á Sauðárkróki sem Róbert bakari greip af handahófi í gærmorgun og fékk til þess að koma og smakka nýjustu afurðir Karstens Rammenholt bakara í gær dag en Karsten mun á föstudag taka þátt í kökukeppni Íslensk ameríska.

Var um að ræða fjórar kökur sem Karsten er að þróa fyrir keppnina en skilyrðið er að kökurnar innihaldi Kahlúa líkjör og hráefni frá purgios.

Það er skemmst frá því að segja að kökurnar slógu allar sem ein í gegn en þó voru meðlimir dómnefndar götunnar sammála um að kaka 1 og 3 væru bestar.

Mun Karsten nú taka ábendingar dómnefndar götunnar til athugunar og klára kökurnar enda er stefnt að sigri í keppninni.

Fleiri fréttir