Komst ekki áfram úr undanriðli
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
11.02.2014
kl. 14.14
Sævar Birgisson, skíðagöngumaður frá Sauðárkróki, komst ekki áfram úr undanriðli þegar hann keppti á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í morgun. Sævar hefur ekki lokið keppni en hann keppir í 15 km göngu með hefðbundinni aðferð þann 14. febrúar nk.
Sævar keppti í fyrri riðli undankeppninnar sprettgöngu og er þá gengið 1,4 km. Sævar lauk keppni á tímanum 3:59:50 sem skilaði honum 72.sæti en alls voru 86 keppendur skráðir til leiks í þessum riðli. Hann komst því ekki áfram úr undanriðlinum en 30 hraðskreiðustu skíðagöngumennirnir komast áfram í sjálfa úrslitagönguna.
Heimild: Rúv.is