Konur eru konum bestar

Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið í Sauðárkrókskirkju í september og október.
Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur verður haldið í Sauðárkrókskirkju í september og október.

Sjálfstyrkingarnámskeiðið Konur eru konum bestar verður haldið í safnaðarheimili Sauðárkrókskirkju þriðjudagana 27. september og 4. október. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknarprestur á Sauðárkróki, segir að að námskeiðið sé liður í safnaðarstarfinu, að bjóða upp á eitthvað uppbyggilegt.

Hefur þetta námskeið verið haldið í mörgum kirkjum, hér á landi og erlendis frá árinu 1989 og notið vinsælda. „Hér gefst konum tækifæri til að kynnast sjálfum sér betur í félagsskap annarra kvenna. Þær deila reynslu sinni hver með annarri og bent er á leiðir til uppbyggingar,“ segir Sigríður.

Hún segir að einnig sé mikið lagt upp úr umræðum og hópavinnu. Ýmsum spurningum sé velt upp og sögur Biblíunnar eru notaðar til að varpa ljósi á daglegan veruleika kvenna enn þann dag í dag. Þátttaka er konum að kostnaðarlausu, en nauðsynlegt að skrá sig á netfangið: sigridur.gunnarsdottir@kirkjan.is.

Fleiri fréttir