Konurnar sigursælar í fjórganginum
Fyrsta mótið í Skagfirsku mótaröðinni 2014 fór fram í reiðhöllinni Svaðastöðum við Sauðárkrók í gærkvöldi. Keppt var í fjórgangi og má segja að konurnar í hópnum hafi komið, séð og sigrað því þær vermdu öll sigursætin, nema í ungmennaflokki, þar sem Jón Helgi Sigurgeirsson hreppti fyrsta sætið eftir sætaröðun dómara.
Næsta mót verður 5.mars. Það kvöld verður keppt í fimmgangi í ungmennaflokki og í 1. og 2. flokki fullorðinna. Börn og unglingar keppa hins vegar í tölti T7.
Hér að neðan eru úrslit kvöldsins:
Barnaflokkur – Úrslit
1.sæti Björg Ingólfsdóttir og Morri frá Hjarðarhaga - 6,80
2.sæti Anna Sif Mainka Sveinsdóttir og Hlöðver frá Gufunesi - 6,75
3.sæti Guðný Rúna Vésteinsdóttir og Glymur frá Hofstaðaseli - 5,59
4.sæti Guðmunda Góa Haraldsdóttir og Gátt frá Lóni - 5,43
5.sæti Stefanía Sigfúsdóttir og Ljómi frá Tungu - 5,05
Unglingaflokkur – Úrslit
1.sæti Ásdís Ósk Elvarsdóttir og Gjöf frá Sjávarborg - 6,58
2.sæti Þórdís Inga Pálsdóttir og Drift frá Tjarnarlandi - 6,00
3.sæti Viktoría Eik Elvarsdóttir og Signý frá Enni - 5,92
4.sæti Sigríður Vaka Víkingsdóttir og Tími frá Kagaðarhóli - 5,92
5.sæti Rakel Eir Ingimarsdóttir og Klemens frá Dallandi - 5,71
Viktoría vann hlutkestið á milli 3. og 4.sætis.
Ungmennaflokkur - Úrslit
1.sæti Jón Helgi Sigurgeirsson og Smári frá Svignaskarði - 6,13
2.sæti Elín Magnea Björnsdóttir og Stefnir frá Hofstaðaseli - 6,13
3.sæti Laufey Rún Sveinsdóttir og Ótti frá Ólafsfirði - 6,10
4.sæti Rósanna Valdimarsdóttir og Sprækur frá Fitjum - 5,90
5.sæti Steindóra Haraldsdóttir og Drífandi frá Saurbæ - 5,89
Jón Helgi hlaut 1.sætið eftir sætaröðun dómara.
2.Flokkur – Úrslit
1.sæti Eva Dögg Sigurðardóttir og Stígandi frá Sigríðarstöðum - 5,96
2.sæti Halldór Þorvaldsson og Draupnir frá Dalsmynni - 5,96
3.sæti Salbjörg Matthíasdóttir og Glotti frá Glæsibæ - 5,83
4.sæti Birna Magnea Sigurbjörnsdóttir og Lilja frá Ytra-Skörðugili - 5,75
5.Sæti Ingimar Jónsson og Garður frá Fjalli - 5,58
Eva Dögg hlaut 1.sætið eftir sætaröðun dómara.
1.Flokkur – Úrslit
1.sæti Hanna Rún Ingibergsdóttir og Nótt frá Sörlatungu - 7,37
2.sæti Lilja Pálmadóttir og Glanni frá Hofi - 6,73
3.sæti Barbara Wenzl og Hrafnfinnur frá Sörlatungu - 6,67
4.sæti Arndís Björk Brynjólfsdóttir og Hekla frá Vatnsleysu - 6,20
5.sæti Elvar Einarsson og Gaukur frá Kirkjubæ - 6,17