Kormákur undirbýr þorrablót

Ungmennafélagið Kormákur auglýsir eftir félagsmönnum og velunnurum sem vilja leggja hönd á plóginn við undirbúning þorrablóts í nýjasta tölublaði Sjónaukans. Þorrablótið verður í Félagsheimilinu Hvammstanga 4. febrúar n.k.

Í boði eru fjölbreytt verkefni, stór og smá. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Odd Sigurðsson á netfangið kormakur@simnet.is, í síma 898-2413 eða beint.

 

Fleiri fréttir