Kosning hafin um kjarasamninga
Félagar í Starfsmannafélagi Skagafjarðar eru hvattir til að kynna sér nýgerða kjarasamninga við Samband sveitarfélaga en klukkan 17:00 í dag verða þeir kynntir á Mælifelli á Sauðárkróki. Kosning um samninginn fer fram á netinu með rafrænum hætti og hófst hún kl. 12.00 í dag, og lýkur henni kl. 20.00 þriðjudaginn 14. júní.
Félagsmenn Samflots fá net- eða bréfapóst með lykilorði sem þeir nota þegar þeir kjósa. Tengill inná kosninguna er á http://samflot.is/ .
Þeim sem ekki hafa tölvuaðgang er bent á að hafa samband við skrifstofu eða formann síns félags og fá aðstoð.
Það er mjög mikilvægt að félagsmenn segi sitt álit með því að kjósa og viljum við því hvetja félagmenn til að nota atkvæðisrétt sinn og taka þar með afstöðu til samningsins, segir á heimasíðu Samflots.