KR-ingar náðu toppleik í DHL-höllinni og skelltu Stólunum

Í kvöld fór fram þriðji leikur Tindastóls og KR í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn. Heimamenn í DHL-höllinni í Frostaskjóli hittu á toppleik og tóku forystuna í einvíginu með öruggum sigri. Stólarnir áttu ágætan leik, sérstaklega í sókninni, en lentu 25 stigum undir í þriðja leikhluta og það bil náðu þeir ekki að brúa þó staðan hafi verið löguð. Lokatölur 104-91.

KR-ingar höfðu yfirhöndina frá byrjun og komust í 10-4 en Helgi Magnússon gerði tvær 3ja stiga körfur á þeim kafla. Helgi Rafm og Flake minnkuðu muninn í eitt stig og leikurinn í jafnvægi næstu mínúturnar. Heimamenn, sem voru sjóðheitir í skotunum, sigu síðan framúr undir lok fyrsta leikhluta og leiddu 28-19 að honum loknum. KR-ingar héldu uppteknum hætti í öðrum leikhluta og Brynjar Þór setti tvo þrista og staðan orðin 40-25. Í kjölfarið kom ágætur kafli hjá gestunum og munurinn yfirleitt 10-14 stig fram að hálfleik en þá leiddu KR-ingar 53-41. KR hafði þá ekki misnotað eitt einasta skot innan teigs og höfðu hitt frábærlega utan 3ja stiga línu.

Vesturbæingar gerðu út um leikinn í byrjun þriðja leikhluta og gerðu nítján stig á sama tíma og Stólarnir gerðu fjögur. Staðan því orðin 72-45 og þessi u.þ.b. 25 stiga munur hélst fram að fjórða leikhluta. Tindastólsmenn gerðu fjórar 3ja stiga körfur í röð í byrjun fjórða leikhluta en KR-ingar létu sér hvergi bregða og mölluðu áfram. Helgi Rafn minnkaði muninn í 20 stig með öðrum þristi sínum í leiknum og þá átti Sigurður Páll ágæta innkomu og negldi niður tvo þrista á lokamínútunum og gaf fyrir vikið lokatölum leiksins heldur efnilegra yfirbragð fyrir gestina.

KR er því komið með undirtökin í rimmunni og með sigri í Síkinu næstkomandi miðvikudagskvöld geta þeir fagnað Íslandsmeistaratitli annað árið í röð. Tindastólsmenn munu að sjálfsögðu gera sitt besta til að koma í veg fyrir það og tryggja sér þannig möguleika á að spila hreinan úrslitaleik í Reykjavík um næstu helgi. Til þess þurfa Stólarnir þó að ná upp sama varnarleiknum og í leik 2 og þá standa vonir til þess að Myron Dempsey fái loksins grænt ljós á að spila með, en hann var enn fjarri góðu gamin í kvöld eftir að hafa fengið heilahristing rétt áður en einvígið hófst.

„Við þurfum að láta þetta snúast
um varnarleikinn“

„Við spiluðum vel í fyrri hálfleik og það munaði bara tólf stigum þá. Leikurinn er ekki búinn þegar það munar bara tólf stigum,“ sagði Israel Martín, þjálfari Tindastóls í spjalli við Vísi eftir leikinn.

„Þeir settu niður auðveld þriggja stiga skot og enduðu yfir 50% í skotnýtingu. Það var erfitt en við gerðum okkur einnig erfitt fyrir með því að koma okkur í villuvandræði, sérstaklega hjá Flake og Helga Rafni - mönnunum fyrir innan. Þeir fóru of snemma í þrjár villur og þá enduðum við með því að spila með fjóra litla menn. Og það var mjög erfitt. Það er alveg ljóst að ef það er spilað upp á stigaskorun þá mun KR vinna. Við þurfum að láta þetta snúast um varnarleikinn. Þá eigum við möguleika. Við erum þó að spila við besta lið landsins. Það er KR. Í dag sáum við bestu útgáfuna af KR.“

Brynjar Þór Björgvinsson og Michael Craion voru mjög góðir í liði KR í kvöld og var Brynjar með 6 af 9 í 3ja stiga skotum en Craion 12 af 14 innan teigs. KR-ingar voru sterkari í fráköstunum og 3ja stiga nýting þeirra var 56% (14/25) og ljóst að það er erfitt að eiga við þá í þessum ham.

Finnur Freyr, þjálfari KR, hvatti í samtali við Vísi alla KR-inga til að koma á Sauðárkrók á miðvikudag, þar sem hans menn ætla sér að tryggja titilinn. „Við höfum átt tvo leiðinlega leiki á Króknum í vetur og nú finnst okkur tími til kominn að spila vel og vinna þá. Ég trúi ekki öðru en að menn mæti vel stemmdir í þann leik. Ég hvet hvern einasta KR-ing til að taka sér frí í vinnunni og skella sér í vetrarsæluna fyrir norðan - lengja veturinn aðeins,“ sagði Finnur í léttum dúr. „Ég vona að fólk fjölmenni enda mikil stemning á Króknum og gaman að spila þar í frábærri umgjörð Tindastóls.“

Pétur Birgisson var bestur í liði Tindastóls með 11 stig, hann hirti flest fráköst Stólanna eða fimm og átti tíu stoðsendingar. Helgi Rafn og Lewis voru stigahæstir Stólanna með 19 stig og báðir voru þeir með fjögur fráköst. Flake, sem var hreint frábær á fimmtudaginn, skilaði sínu í kvöld þó KR-ingar hefðu passað betur upp á kappann að þessu sinni. Stólarnir áttu ágætan leik í sókninni, gerðu 91 stig sem er ansi gott, og 3ja stiga nýtingin var 48% (13/27). Menn hafa hins vegar tjáð sig um það að til að Stólarnir eigi möguleika þurfi þeir að halda KR undir 80 stigum. Það verður því spennandi að sjá hvað gerist á miðvikudag í Síkinu. Nú verða allir að mæta – áfram Tindastóll!

Stig Tindastóls: Helgi Rafn 19, Lewis 19, Pétur 11, Ingvi Rafn 10, Flake 9, Helgi Margeirs 9, Svavar 6, Siggi 6 og Viðar 2.

Tölfræði leiks á vef KKÍ >

Fleiri fréttir