KR-ingarnir koma!

Annar leikurinn í úrslitaseríunni á milli Tindastóls og KR fer fram fimmtudaginn 23. apríl kl 19:15. Körfuknattleiksdeild Tindastóls hvetur alla til að mæta í Síkið og hvetja strákana til sigurs. „Síðasti leikur fór KR-ingum í vil en þau úrslit hafa ekkert að segja varðandi næsta leik,“ segir í tilkynningu frá deildinni.

Forsala aðgöngumiða hefst kl: 17.00. Sama miðaverð og í allan vetur, kr. 1.500.-

Sjáumst í Síkinu!!

Fleiri fréttir