Krækjur kræktu sér í þriðja sætið

Blakfélagið Krækjur á Sauðárkróki byrjar nýtt ár af krafti. Laugardaginn 11. janúar fóru þær til Húsavíkur á fyrsta mót ársins "Nýársmót Völsungs" og kepptu þar í 2. deild en fjórar kvennadeildir voru á mótinu. Sjö lið voru skráð í 2. deild og lentu Krækjur í þriðja sæti sem er mjög  góður árangur. Aðeins einn leikur tapaðist.

Lagt var af stað kl.08:00 um morguninn og var ekki komið heim fyrr en uppúr miðnætti, þar sem leikir drógust mjög fram eftir degi, eins og segir í fréttatilkynningu frá krækjunum.

Leikmenn Krækja í þessari ferð voru:

Helga Fanney leikur stöðu miðjusmassara

Jóna Björk  leikur stöðu miðjusmassara

Una leikur stöðu kantsmassara

María Sif leikur stöðu kantsmassara

Steinunn leikur stöðu kantsmassara

Þórdís leikur stöðu aðstoðar uppspilara

Sigurlaug  leikur stöðu uppspilara

Ásta Margrét  nýliðinn okkar – leikur stöðu kantsmassara.

Krækjur eru að vonum ánægðar með árangurinn og bíða spenntar eftir næsta móti sem er á Akureyri 31. janúar.

 

Fleiri fréttir