Kraftur á morgun
Útivistar- og sportsýningin Kraftur 2011verður haldin í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki um helgina. Til sýnis verða ýmis tól og tæki sem nauðsynleg þykja til að gera útivistina meira spennandi og segir Eyþór Jónasson framkvæmdastjóri sýningarinnar að öflugri tæki verða til sýnis en áður í reiðhöllinni.
Þeirra á meðal eru aflmesti fjórgengis snjósleði landsins og sérútbúinn torfærubíll. Skagfirskir afrekakstursíþróttamenn sýna bílana sína en einnig verður byssusýning af dýrari gerðinni ásamt framandi uppstoppuðum dýrum. Sýningin hefst á morgun laugardag klukkan 10:00 og stendur til 18:00 en ásunnudag verður hún opin milli klukkan 11:00 og 16:00.