Krefst þess að Birgitta Jónsdóttir biðjist opinberlega afsökunar

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar lýsti furðu sinni og fullri vanþóknun á ummælum Birgittu Jónsdóttur, 8. þingmanns Reykjavíkur, í garð Skagfirðinga og Skagafjarðar á fundi í morgun. „Það að þingmaðurinn gefi í skin að Skagafjörður sé mafíusamfélag, sem þrífst á glæpum og glæpatengdri starfssemi er með öllu ólíðandi og óverjandi og sæmir ekki þingmönnum né nokkrum öðrum,“ segir í ályktun byggðarráðs.

Í ályktuninni segir ennfremur að ummæli af þessu tagi lýsa fullu skilningsleysi þingmannsins á stöðu landsbyggðarinnar til viðhalds og uppbyggingar á atvinnu- og mannlífi og ákveðni Skagfirðinga til að standa vörð um þessa grunnþætti í sínu héraði.

„Er það von okkar Skagfirðinga að þingmaðurinn hefji umræðuna upp úr þeirri lágkúru sem þessi ummæli báru með sér og í þá veru að efla traust og tiltrú almennings á Alþingi, alþingismönnum og störfum þeirra.“

Þess er krafist að þingmaðurinn biðjist opinberlega afsökunar á ummælum sínum.

Ályktun byggðaráðs má sjá hér.

Fleiri fréttir