Kristján Geir í 4. sæti í Oslo Grand Prix
Tíu af þrettán Íslendingum sem kepptu á Oslo Grand Prix mótinu í Noregi um síðustu helgi komust í sex manna úrslit eða á verðlaunapall. Alls kepptu Íslendingarnir í sjö mismunandi keppnisflokkum í fitness og vaxtarrækt. Þar á meðal keppenda var Skagfirðingurinn, Kristján Geir Jóhannesson.
Oslo Grand Prix er með sterkustu Fitness- og Vaxtarræktarmótum sem haldin eru á norðurlöndunum og verður því þessi árangur Íslendinganna að teljast glæsilegur í því ljósi. Í flokknum sem Kristján keppti í var ljóst frá upphafi að keppnin yrði jöfn og spennandi. Kristján komst í úrslit en það eru 6 efstu keppendurnir í flokknum og eftir erfiða og harða keppni endaði hann í 4. sæti. Það er mjög góður árangur, miðað við að þetta er fyrsta stórmótið sem hann keppir á erlendis. Kristján Geir var mjög ánægður með ferðina og mikill hugur í honum að fara aftur út.
/ah