Kristján Geir Íslandsmeistari í fitness 2011
Þann 22. apríl lauk Íslandsmeistaramótinu í fitness. Þetta var hörku mót og voru keppendur 100 talsins. Í fitness flokki karla mættu 11 fjallmyndarlegir karlmenn til leiks. Skagfirðingurinn Kristján Geir Jóhannesson mætti í sínu besta formi til þessa og var í hörku keppni við Gauta Má Rúnarsson frá Ólafsfirði.
Gauti Már er margfaldur Íslandsmeistari í fitness og er ekkert lamb að leika sér við í þessum málum. Eftir mikla og harða keppni fór svo að Kristján Geir vann Gauta Má og er því Íslandsmeistari í fitness 2011. Kristján Geir flýgur út til Osló í Noregi um næstu helgi og keppir á stóru móti í þar. Hann ætlar að mæta í enn betra formi og veður spennandi að fylgjast með honum. Kristján Geir vill þakka öllum þeim sem hafa stutt við bakið á honum með einum eða öðrum hætti. Hægt er að sjá meira um keppnina á www.fitness.is