Króksblóti 2021 aflýst
Í ljósi aðstæðna í heiminum, hefur Króksblótsnefnd ákveðið að þorrablót Króksara, Króksblót 2021, sem átti að vera núna í febrúar næstkomandi, veði frestað fram til ársins 2022.
Í tilkynningu nefndarinnar segir að stefnt verði á að halda veglegt blót að ári og verður nánari dagsetning auglýst síðar. Það er árgangur 1968 sem heldur um stjórnartaumana að þessu sinni og í fyrsta sinn sem stjórn situr í tvö ár, sannarlega fordæmalausir tímar.