Króksblótið verður í Íþróttahúsinu

Nú hefur allri óvissu um Króksblótið verið eytt og verður það haldið í Íþróttahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 4. febrúar nk. Undirbúningur er í fullum gangi, en það er árgangur 1959 sem sér um blótið að þessu sinni.

Óvissar stafaði af því að ekki er hægt að vera í íþróttahúsinu á parketinu óvörðu en nú er það í skoðun að nota teppi sem til er og Atvinnumálanefnd keypti fyrir Atvinnulífssýninguna í maí 2010. María Björk Ingvadóttir frístundastjóri Skagafjarðar segir að verið sé að skoða tilboð í yfirlag- varnarlag fyrir parketið og koma til greina teppaflísar og dúkur. Ekki er búið að taka faglega ákvörðun um hvort verður fyrir valinu.

Búast má við því að sveiflan verði allsráðandi þar sem sveiflukóngurinn sjálfur, Geirmundur Valtýsson mun halda uppi fjöri.  Allar nánari upplýsingar um blótið munu verða í næsta Sjónhorni og á Feyki.is

Fleiri fréttir