Krufning í Árskóla

Það var hamagangur í öskjunni í gær þegar nemendur í 8. bekkjum Árskóla fengu í náttúrufræðitíma að kryfja innmat og hausa af sauðfé en það var hluti af náttúrufræðikennslunni. Það var ansi blóðug kennslustundin hjá krökkunum en flestir voru að handfjatla innmat í fyrsta skiptið en þau fengu að skera að vild lifur og nýru og lungun voru blásin upp. Þá voru hausarnir vinsælir einkum að ná augunum úr en jafnframt það sem vakti mesta hrollinn.

 

Linda Þórdís Róbertsdóttir var ein af kryfjurunum og sagði að þetta hefði verið ógeðslegt aðspurð um hvernig henni hafi fundist. –Við vorum að kryfja lungu, nýru, hjarta og hausa sem voru viðbjóðslegir. Linda segist ekki hafa smakkað innmat en Jóna María Eiríksdóttir bekkjarsystir hennar segist hafa smakkað svið. Þetta var í fyrsta skiptið sem Þórdís kemst í snertingu við þennan rammíslenska mat en Jóna hefur tekið þátt í heimaslátrun enda uppalin í sveit.

Bergmann kennari var ánægður með kennslustundina og vildi koma kærum þökkum til Vignis slátrara hjá KS sem hefur verið einkar liðlegur að útvega hráefnið.

.

Fleiri fréttir