KS-deildin fer af stað á morgun

Meistaradeild Norðurlands eða KS-deildin í hestaíþróttum hefst á morgun en mótið mun fara fram í Reiðhöllinni Svaðastöðum á Sauðárkróki í vetur, á miðvikudagskvöldum kl. 20. Mótið hefst með úrtöku en aðeins sex keppendur taka þátt og keppa um fjögur sæti. 

Keppt verður í fjórgangi og fimmgangi en samkvæmt vef Hestafrétta hafa Jóhann Magnússon og Baldvin Ari Guðlaugsson þegar unnið sér þátttökurétt í KS-deildinni með frammistöðu sinni veturinn 2013 og því verður aðeins keppt um fjögur sæti í úrtökunni á morgun.

Hér að neðan má sjá þá sem etja kappi og eins hvernig liðskipanin er í liðakeppninni fyrir úrtökuna.

Fjórgangur

1. Hlín Mainka Jóhannesdóttir - Kappi frá Þúfum
2. Lilja Pálmadóttir - Mói frá Hjaltastöðum
3. Sveinn Brynjar Friðriksson - Lakkrís frá Varmalæk 1
4. Sölvi Sigurðarson - Bjarmi frá Garðakoti
5. Hörður Óli Sæmundarson - Fífill frá Minni-Reykjum
6. Arnar Bjarki Sigurðsson - Mímir frá Hvoli

Fimmgangur

1. Arnar Bjarki Sigurðsson - Engill frá Galtastöðum
2. Hörður Óli Sæmundarson - Hreinn frá Vatnsleysu
3. Lilja Pálmadóttir Seiður frá Hörgslandi
4. Sveinn Brynjar Friðriksson - Synd frá Varmalæk
5. Sölvi Sigurðarson - Starkarður frá Stóru-Gröf ytri
6. Hlín Mainka Jóhannesdóttir - Glóðar frá Árgerði

 

Þeir sem eru komnir í liðin sex eru eftirfarandi:

Laekjamot.is

- Ísólfur Líndal Þórisson
- Vigdís Gunnarsdóttir

Weierholz

- Bjarni Jónasson
- Sigvaldi Guðmundsson

Björg - Fákasport

- Viðar Bragason
- Þorbjörn H. Matthíasson

Hrímnir

- Þórarinn Eymundsson
- Líney María Hjálmarsdóttir

 Lið Mette Mannseth Þúfum

- Mette Mannseth
- Gísli Gíslason

Top Reiter - Syðra Skörðugil

- Elvar E. Einarsson
- Tryggvi Björnsson

 

Fleiri fréttir