KS framlengir matvælaaðstoð sína

Kaupfélag Skagfirðinga hefur ákveðið að framlengja fram yfir páska matvælaaðstoð sína við þá sem eiga í erfiðleikum vegna atvinnumissis af völdum COVID-19 faraldursins eða fjárhagsvanda af öðrum ástæðum. 

Matargjafir félagsins fyrir jólin, alls um 90 þúsund máltíðir sem dreift var með milligöngu hjálparstofnana, komu sér víða vel en vandinn er enn til staðar. KS hefur þess vegna tekið ákvörðun um að halda áfram á sömu braut í samstarfi við Fjölskylduhjálp Íslands, Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur og aðra staðbundna aðila, segir í fréttatilkynningu sem Kaupfélagið sendi frá sér í dag. 

Í tilkynningunni segir að fyrirkomulag varðandi dreifingu matvælanna verði með sama hætti og fyrr. Framangreindar hjálparstofnanir muni annast úthlutun og hver máltíð verði sem fyrr samsett af íslenskum matvælum sem einkum eiga uppruna sinn í framleiðslu kaupfélagsins og dótturfélaga þess.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir