KS og Meistaradeildin skrifa undir samning
Eyþór Jónasson f.h. Meistaradeildar Norðurlands og Bjarni Maronsson stjórnarformaður Kaupfélags Skagfirðinga skrifuðu í dag undir samning þess efnis að Kaupfélagið styrkir keppni vetrarins sem ber heiti þess þ.e. KS-Deildin líkt og undanfarin ár. Styrkurinn er forsenda þess að hægt er að halda keppnina eins glæsilega og raun ber vitni.
Að vanda má búast við harðri og spennandi keppni í vetur og byrjar veislan í kvöld er keppt verður í fjórgangi. Hægt verður að fylgjast með á netinu á slóðinni http://wms.vodafone.is/tindastoll