KS tekur við rekstri Upplýsingamiðstöðvar í Varmahlíð
Fulltrúar Kaupfélags Skagfirðinga og Sveitarfélagsins Skagafjarðar undirrituðu á dögunum samning sem kveður á um að KS tekur að sér rekstur upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðafólk í verslun sinni í Varmahlíð. Sveitarfélagið Skagafjörður hefur með sérstökum samningi við ferðamálayfirvöld í landinu rekið svokallaða landshlutaupplýsingamiðstöð á ársgrundvelli í Varmahlíð síðan árið 2004.
Miðstöðin hefur verið staðsett í litlu húsi sem byggt var fyrir starfsemi miðstöðvarinnar og handverkssölu Alþýðulistar, sem upplýsingamiðstöðin hefur annast síðustu ár.
Nú hefur hinsvegar Alþýðulist hafið sjálfstæðan rekstur handverksbúðar í húsinu og ný upplýsingamiðstöð er orðin til í verslun KS í Varmahlíð. Þar er að finna mikið magn upplýsinga í bæklingaformi, nettengdar tölvur til upplýsingaleitar, auk þess sem miðstöðin er mönnuð á opnunartíma verslunarinnar. Símanúmer miðstöðvarinnar er óbreytt, 4556161 og sama er að segja um netföng hennar, upplysingar@skagafjordur.is og info@skagafjordur.is, allar upplýsingar um ferðaþjónustu í Skagafirði er síðan að finna á vefsíðunni visitskagafjordur.is.
/Skagafjörður