Kvikmyndahátíðin verður sett í dag - Rætt við nýjan og fráfarandi framkvæmdastjóra Nes í Feyki

Kvikmyndahátíðin „The Weight of Mountains“ verður haldin á Skagaströnd um helgina en um er að ræða fyrstu kvikmyndahátíðina þar í bæ. Dagskrá hátíðarinnar er metnaðarfull og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Setning hennar fer fram í Kaffi Bjarmanesi í kvöld kl. 19:00.

Umfjöllun um hátíðina er að finna í nýjasta tölublaði Feykis, ásamt viðtal við nýjan framkvæmdastjóra Nes listamiðstöðvar, Ninette Rothmüller þar sem hún segist vera mjög hrifin af samfélaginu á Skagaströnd og hafa fullkomna trú á listamiðstöðinni. Einnig er spjallað við Melody Woodnutt sem kveður Skagaströnd að kvikmyndahátíðinni lokinni eftir tveggja ára starf við Nes listamiðstöð.

Metnaðarfull dagskrá

Í kvöld verður til sýningar fyrsta stuttmynd hátíðarinnar eftir Emily McAllan sem kallast Kvikmyndabréfin en um er að ræða röð stuttmynda um dvöl kvikmyndagerðafólksins á Skagaströnd sl. þrjá mánuði.

Á morgun Dagskráin hefst kl. 13:00 með barnasýningu á nýlegri Hollywood kvikmynd, Oz: The Great and Powerful (2013. Um kvöldið kl. 19:00 verða svo sýndur afrakstur vinnu kvikmyndagerðafólksins, tíu stuttmyndir sem gerðar voru á Skagaströnd á meðan dvöl þeirra stóð. Á sama tíma verða myndirnar til sýningar í Gúttó á Sauðárkróki og gefst þeim sem ekki komast til Skagastrandar tækifæri til að sjá þær.

Á sunnudeginum verður boðið upp á íslenskar kvikmyndir í Fellsborg. Klukkan 14:00 verður kvikmyndin Búðin (2013) eftir Árna Gunnarsson og Á annan veg (2012) eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson verður svo sýnd kl. 17 og verður þá boðið upp á poppkorn. Í kjölfarið á henni verður bandaríska kvikmyndin A Place Beyond the Pines (2012) til sýningar.

Kvikmyndahátíðin endar svo formlega í Bíó Paradís í Reykjavík þann 28. febrúar nk. með sýningu á stuttmyndunum tíu og getur kvikmyndaáhugafólk sunnan heiða þá brugðið sér í bíó.

Smelltu hér til að gerast áskrifandi að Feyki.

 

Fleiri fréttir