Kvikmyndaviðburði í Gúttó frestað um viku

Kvikmyndaviðburður verður haldin í menningarhúsinu Gúttó á Sauðárkróki föstudaginn, 31. janúar kl. 19, í stað 24. janúar eins og til stóð upprunalega. Þá munu kvikmyndagerðamenn frá ýmsum löndum, sem starfa í Nes listamiðstöð á Skagaströnd um þessar mundir, sýna úrval stuttmynda sem þeir hafa unnið fyrir komu sína til Íslands.

Kvikmyndagerðamennirnir eru tíu talsins og munu dvelja í Nes listamiðstöð í þrjá mánuði vegna þátttöku sinnar í verkefni sem kallast „The Weight of Mountains film development program and festival“, sem er kvikmyndaþróunarverkefni og –hátíð. En samkvæmt fréttatilkynningu frá Nes listamiðstöð stendur til að halda kvikmyndahátíð á Skagaströnd dagana 20. – 22. febrúar nk. Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefsíðunni: www.twom.is.

Uppfært 21. janúar kl. 14:06.

Ákveðið hefur verið að fresta kvikmyndaviðburðinum um eina viku, til föstudagsins 31. janúar, vegna fyrirhugaðrar útfarar Önnu Jónu Sigurbjörnsdóttur, sem lést í bílslysi þann 12. janúar sl., á laugardag.

„Hugur okkar og samúð er hjá bæjarbúum Sauðárkróks, fjölskyldu stúlkunnar og öllum þeim sem þekktu hana,“ segir í fréttatilkynningu frá Nes listamiðstöð.

Fleiri fréttir