Kynningarfundir um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra
Samstarfsnefnd um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra mun innan tíðar skila tillögu sinni um sameiningu sveitarfélaganna til beggja sveitarstjórnanna. Í kjölfarið mun kynningarefni verða dreift á hvert heimili í sveitarfélögunum.
Nefndin var skipuð af sveitarstjórnum beggja sveitarfélaganna í júní sl. og frá þeim tíma hefur hún haldið nokkra málefnafundi og unnið að gagnasöfnun vegna mögulegrar sameiningar.
Íbúakosning um sameiningartillöguna fer fram í sveitarfélögunum þann 3. desember nk. en fyrir þann tíma eru áformaðir kynningarfundir með íbúum í Bæjarhreppi og Húnaþingi vestra og verða þeir auglýstir þegar nær dregur.
Þeir sem vilja kynna sér málið nánar er bent á að fundargerðir samstarfsnefndarinnar er að finna á heimasíðu Húnaþings vestra.