Kynningarfundir um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra

Almennir kynningarfundir um tillögu að sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra verða haldnir á Borðeyri og Hvammstanga, þriðjudaginn 22. nóvember nk. 

Samstarfsnefnd um sameiningu Bæjarhrepps og Húnaþings vestra hvetur íbúa Bæjarhrepps og Húnaþings vestra til að sækja fundina sem verða sem hér segir:

Í skólahúsinu á Borðeyri þriðjudaginn 22. nóvember n.k. kl. 16:00.
Í Félagsheimilinu Hvammstanga þriðjudaginn 22. nóvember n.k. kl. 20:00.

Kynningarbæklingi um sameiningu sveitarfélaganna verður dreift um miðjan nóvembermánuð á öll heimili í sveitarfélögunum.

Nánari upplýsingar um samantekt samstarfsnefndar og KPMG er að finna á heimasíðu Húnaþings vestra  og á strandir.is.

Fleiri fréttir