Kynningarfundur ferðaþjónustunnar 2015
feykir.is
Skagafjörður
06.06.2015
kl. 16.20
Árlegur kynningarfundur Félags ferðaþjónustunnar verður haldinn á mánudaginn 8. júní kl 11:30-13:30 á Hótel Varmahlíð. Á fundinum kynna aðilar að félaginu starfsemi sína hver fyrir öðrum.
Greint er frá því sem verður í boði í sumar, skipst á upplýsingum og kynningarefni dreift. Fundurinn, sem haldinn er árlega, hefur verið mjög upplýsandi og hjálpað ferðaþjónustuaðilum til að vera vel með á nótunum varðandi þjónustuframboð í Skagafirði.
„Við hvetjum ykkur til að mæta og/eða senda framlínufólkið ykkar á staðinn. Allir sem reka ferðaþjónustutengda starfsemi í firðinum og hafa til þess leyfi eru velkomnir á fundinn til að kynna sig,“ segir í tilkynningu frá félaginu.