Kynningarfundur með Richard Hughes

Barna- og unglingaráð Golfklúbbs Sauðárkróks boðar til kynningarfundar vegna golfskólans miðvikudaginn 1. júní nk. Allir þeir sem að ætla að vera með í golfskólanum í sumar mæti kl.17:00 á æfingasvæðið og hafi með sér golfsettin sín, einnig verður hægt að fá lánaðar kylfur.

Það verður tekin klukkutíma æfing og síðan færum við okkur upp í golfskálann kl.18:00 og þá væri gott að foreldrarnir bættust í hópinn. Golfkennarinn klúbbsins, Richard Hughes, stjórnar æfingunni og hann ætlar síðan að fara yfir starfið í sumar. Eins og áður hefur komið fram þá verður golfskólinn starfræktur frá 7. júní og fram í ágúst mánudaga til fimmtudaga ( báðir dagar meðtaldir ).

Forráðamenn klúbbsins verða líka á fundinum og fara yfir starfsemi klúbbsins í sumar. Við viljum hvetja alla til að mæta á þennan kynningarfund okkar.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir