Kynningarfundur vegna köfuboltabúða

Kynningarfundur vegna körfuboltabúða Tindastóls verður haldinn í Húsi frítímans, miðvikudaginn 30. mars kl. 20.00. Á fundinum verður sagt frá undirbúningi körfuboltabúðanna og starfsemi þeirra kynnt. Minnt er á forskráninguna.

Nauðsynlegt er að forskrá heimakrakka í búðirnar svo sjá megi hversu mörg sæti er hægt að bjóða aðkomukrökkum. Forskráningu á að senda á netfangið korfuboltabudir@tindastoll.is.

Á kynningarfundinum verður farið yfir skipulag búðanna, erlendir gestir kynntir og fyrirspurnum svarað.

Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að mæta og kynna sér málið, en einnig er fundurinn opinn fyrir aðra áhugasama.

Fleiri fréttir