Kynslóðamessa í Hvammstangakirkju

Kynslóðamessa verður haldin í Hvammstangakirkju í dag, sunnudag 23. september, kl. 14:00. Samkvæmt auglýsingu í Sjónaukanum er messan hugsuð til að tengja saman kynslóðirnar.

Æskulýðsfélag Hvammstangakirkju hefur veg og vanda að henni og býður sérstaklega eldri borgurum samfélagsins að koma til kirkju og þiggja kaffiveitingar að messu lokinni.

Kirkjukór Hvammstanga leiðir safnaðarsöng undir stjórn organista.

Fleiri fréttir