Lætur af störfum eftir margra ára dygga þjónustu

Arna Kristjánsdóttir lét af störfum í Ráðhúsinu á Sauðárkróki fyrir helgi eftir margra ára dygga þjónustu. Á vef Sveitarfélagsins Skagafjarðar segir að Arna sé búin að starfa í Ráðhúsinu síðan um mitt ár 2003 eða í tæp 12 ár en nú ætlar hún að flytja sig um set suður til Selfoss í námunda við systur sína.

„Örnu verður sárt saknað í Ráðhúsinu en við óskum henni að sjálfsögðu góðs gengis á nýjum vettvangi og vonum að hún heimsæki okkur sem oftast hingað norður,“ segir loks á vefnum.

Fleiri fréttir