Lagður af stað í Umhyggju-göngu
Sigvaldi Arnar Lárusson, lögreglumaður á Suðurnesjum, lagði af stað í Umhyggju-göngu kl. 9 í morgun frá Keflavík. Ef áætlanir ganga eftir er hann væntanlegur til Sauðárkróks nk. föstudagskvöld og endar gangan á Hofsósi að laugardeginum 13. júní, þar sem vel verður tekið á móti honum.
Kveikjan að Umhyggju-göngunni þegar Sigvaldi gerðist kokhraustur og spáði því að Gylfi Sigurðsson yrði kjörinn íþróttamaður ársins 2014. „Hafi ég rangt fyrir mér skal ég hlaupa/ganga til Hofsós næsta sumar,“ sagði Sigvaldi á fésbókinni skömmu fyrir kjörið sem stendur nú við stóru orðin.
„Langar mig til að nota tækifærið á hvetja fólk og fyrirtæki til að styrkja karlinn í þessu,“ sagði Sigvaldi en allur ágóðinn rennur óskiptur til Umhyggju, félag til stuðnings langveikum börnum.
Grill og gaman við sundlaugina
„Við ætlum að vera við sundlaugina, grilla pylsur og vonandi skella okkur í sund,“ segir Sveinn Einarsson, einn forsprakki móttökunnar, en Björgunarsveitin Grettir og Ungmennafélagið Neisti hafa tekið framkvæmdina upp á sína arma.
„Við vonumst til þess að sem flestir komi og taki vel á móti honum með okkur og geri sér glaðan dag,“ sagði Sveinn í samtali við Feyki.
Hægt er að fylgjast með Sigvalda á Umhyggju-göngunni á Facebook.