Laglega sungu þeir um hestinn á öskudegi

Það var gaman á öskudegi í höfuðstöðvum Feykis í morgun þegar margt málað og glaðlegt andlitið skaut upp kollinum og lét í sér heyra.

Þessir snillingar úr Varmahlíðarskóla spiluðu og sungu lagið Ég sé um hestinn sem Skriðjöklar, með hinn skagfirska Ragga sót í fararbroddi, gerðu ódauðlegt hér um árið.

Við náðum að taka hluta af þessum frábæra flutningi upp á vídeó. Jí-ha!

http://www.youtube.com/watch?v=0QC7qv1xSHA&feature=youtu.be

 

Fleiri fréttir