Lagt til að Samtök stofnfjárhafa í SPHÚN verði lögð niður
Stjórn Samtaka stofnfjárhafa í fyrrum Sparisjóði Húnaþings og Stranda (SSPHUN) hefur sent félagsmönnum sínum bréf þar sem fram kemur tillaga um að leggja samtökin niður. Samtökin hafa ekki verið starfandi í um fjögur ár og ekki líkur á að farið verði af stað í frekari málshöfðun vegna stofnfjáraukningar í SPHÚN.
Ef til þess kemur að samtökin verði lögð niður er einnig lagt til að eignir SSPHUN, sem nema alls 42.398,- verði gefnar Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Komi ekki fram athugasemdir við þessum tillögum fyrir 15. nóvember næstkomandi skoðast hún samþykkt og félagið lagt niður.
Sjá frétt frá 2009: Alvarleg staða stofnfjáreigenda í Húnaþingi vestra