Landgræðslunemar heimsækja Hóla
Hópur nema frá Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (HSþ) kom í heimsókn að Hólum í síðustu viku. Hópurinn var á ferð um landið til að kynna sér m.a. landnýtingu og vistheimtarstarf.
Á Hólum fékk hópurinn kynningu á starfssemi Háskólans á Hólum, sögu skólans og staðarins. Nemarnir nutu leiðsagnar rektors Hólaskóla sem fór með þeim um staðinn, eins og sagt er frá á vefsíðu skólans,
Í ferðinni fengu nemarnir einnig leiðsögn héraðsfulltrúa Landgræðslunnar á Norðurlandi vestra og heimsóttu sauðfjárbónda og höfðu þeir farið vítt um svæðið áður en komið var heim að Hólum. Hópurinn hélt svo áfram suður Kjöl, með viðkomu á Eyvindarstaðaheiði þar sem uppgræðslusvæði voru skoðuð.