Landinn lítur inn á frumsýningu Péturs Pans

Landinn heimsótti nemendur 10. bekks Árskóla á Sauðárkróki á dögunum þegar þeir settu leikritið Pétur Pan á svið í Bifröst. „Þetta skemmtilegasti parturinn núna, þegar sýningarnar byrja. Við rúllum þessu,“ sagði Malen Áskelsdóttir, sem fór með hlutverk Vöndu, í viðtali við Landann á frumsýningardag.

Fylgst er með krökkunum þegar þeir undirbúa sig fyrir stóru stundina og m.a. rætt við leikstjórann Guðbrand Ægi Ásbjörnsson, Atla Dag Stefánsson sem fór með hlutverk hins síunga Péturs Pans og Sigurð Þór Jósefsson sem lék hundinn Nönnu og sjóræningjann Starra. Einnig er rætt við sýningarstjórana Þórdísi Stellu Jónsdóttur og Selmu Björt Magnúsdóttur.

Allir í bekknum höfðu sitt hlutverk og ágóðinn af miðasölunni fer í ferðasjóð. Þátturinn var sýndur a Rúv sl. sunnudagskvöld, þann 29. mars og má nálgast hann hér.

Fleiri fréttir