Landsmót hestamanna verður sýnt á RÚV
Landsmót hestamanna og RÚV hafa gert með sér samning um samstarf á Landsmótinu á Hólum sem hefst 27. júní nk. Samningurinn gerir ráð fyrir að RÚV muni sýna beint frá stærstu keppnisgreinum Landsmóts á föstudegi og laugardegi auk þess að búa til samantektarþætti frá mótinu. Greint er frá þessu á landsmot.is.
„Það er mjög ánægjulegt fyrir Landsmót að geta haldið áfram góðu samstarfi við RÚV sem tryggir að hápunktar Landsmóts verða aðgengilegir í opinni dagskrá, fyrir þá sem ekki komast í Hóla í sumar, en landsmót mun auk þess bjóða upp á netstreymi frá mótinu sem betur verður kynnt innan skamms,“ segir loks í fréttinni.