Landsmóti UMFÍ 50+ lauk í gær

Í gær lauk keppni á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið var á Hvammstanga en mótið hefur í alla staðið farið mjög vel fram. Í gærmorgun hófst keppni í pútti, skák og starfsíþróttum þar sem keppt var í pönnubökubakstri og kökuskreytingu. Síðustu greinar mótsins voru keppni í þríþraut og dráttarvélaakstri.

Pönnubökubakstur og kökuskreyting fóru fram í grunnskólanum á Hvammstanga en þetta atriði hefur ávallt vakið mikla athygli á landsmótum í gegnum tíðina. Svo var einnig að þessu sinni en fjöldi manns fylgdist af áhuga með glæsilegum tilþrifum við baksturinn.

Að sögn Jónínu Sigurðardóttur, greinastjóra í starfsíþróttum, hafa dómarar til hliðsjónar í einkunnagjöfinni frágang við uppskrift, fagmennsku, útlit og bragð svo eitthvað sé nefnt. Keppendur í pönnubökubakstrinum voru sjö, þar af einn karlmaður.

Það er óhætt að segja að þetta fyrsta Landsmót 50+ hafi gefið vísbendingar um það að það sé komið til að vera hvar sem það nú verður næst en auk USVH sótti HSK um að halda þetta fyrsta mót núna.

Myndir frá mótinu er hægt að nálgast m.a. á Norðanáttinni HÉR.

Fleiri fréttir