Langar þig í Hálsaskóg?
Undirbúningsfundur vegna haustverkefnis Leikfélags Sauðárkróks fór fram sl. sunnudag og var ágætlega sóttur. Áfram verður stefnt að því að setja upp leikritið Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner nú á haustdögum.
Þrátt fyrir ágæta mætingu á fundinn er þó ekki enn búið að manna leikritið. Samkvæmt formanni félagsins Sigurlaugar Dóru Ingimundardóttur er því enn pláss fyrir áhugasama í ýmis störf s.s. að leika, smíða, mála, vinna við hljóð og ljós, finna og föndra leikmuni og búninga, sauma, hvísla, selja miða og margt fleira sem þarf til að koma leiksýningu á fjalirnar. Sigurlaug eða Lulla eins og hún er kölluð, segir að reynt sé að hafa aldurstakmörk við 16 ár. “Þeir sem vilja vera með eða hafa einhverjar spurningar geta hafa samband við mig í síma 862 5771,” segir formaðurinn og bætir við að líklega séu einhverjir á þröskuldinum og vantar smá hvatningu til að vera með. Nú sé tækifærið!