Laxness í Varmahlíð
Á vefsíðunni Ljósmynd vikunnar eru margar skemmtilegar myndir frá Ljósmyndasafni Reykjavikur en þar er að finna meira en fimm milljón myndir úr sögu borgarinnar. Á hverjum þriðjudegi, stundum oftar, er ein þeirra birt á vefnum. Síðasta þriðjudag birtist mynd af Halldóri Kiljan Laxness við Jagúar bifreið sína í Varmahlíð í Skagafirði í júní 1972.
„Halldór og Þórbergur, Þórbergur og Halldór. Annar sem allir voru að herma eftir, hinn kom gjarnan fram sem eftirherma. Annar var ævinlega glæsilega uppfærður, aldrei tvisvar í sömu fötunum, hinn eins og barnakennari á eftirlaunum í jakkafötum sem hann hafði fengið árið þegar hann gegndi yfirkennarastöðunni. Annar ók um á beinhvítum Jagúar, hinn fótgangandi á stöðugu randi, berhöfðaður með vaxandi kúlu út úr enninu eins og hann hefði rekið sig á, sveiflandi göngustaf,“ segir í umsögn um myndina en textinn er fenginn úr bók Péturs Gunnarssonar ÞÞ í forheimskunarlandi. Ljósmynd: Andrés Kolbeinsson.