Leggja til að taka upp vetrarveiði haustið 2013

Vetrarveiðar refa voru til umræðu á fundi landbúnaðarráðs Húnaþings vestra í síðustu viku og tók Landbúnaðarráð þá ákvörðun að leggja til við sveitarstjórn að vetrarveiði á ref verði tekin upp að nýju haustið 2013

Í fundargerð kemur m.a. fram að frá 1. september 2011 til 31. ágúst 2012 hafi unnin verið grendýr verið alls 70, yrðlingar alls 156, hlaupadýr alls 24 og minkar alls 77. Kostnaður Húnaþings vestra vegna refa- og minkaveiði á tímabilinu hafi verið alls 5.251.287. Vakin er athygli á því að kostnaður og fjöldi veiddra dýra á við um sameinað sveitarfélag Bæjarhrepps og Húnaþings vestra.

Miðað verði við að heildarfjárhæð sem veitt verði til vetrarveiða á ref verði að hámarki kr. 500.000- á ári og að kr. 4.000- verði greiddar fyrir hvert unnið dýr en landbúnaðarráð mun móta frekari reglur eða viðmið um greiðslur til veiðimanna verði tillaga ráðsins samþykkt. Þá skulu þeir sem hyggjast stunda vetrarveiðar á ref skulu sækja um leyfi til þess til landbúnaðarráðs.

Fleiri fréttir