Leikfélag Sauðárkróks leitar að skemmtilegu fólki

Leikfélag Sauðárkróks boðar til start fundar vegna haustsverkefnis í Leikborg sunnudagskvöldið 11. september nk. kl. 20:00. Þeir sem náð hafa 16 ára aldri og hafa áhuga á að leika, smíða, sauma, sminka, hvísla, selja miða, vera propsari eða hvað annað sem þarf til að koma "eitt stykki" leiksýningu á fjalirnar þá vill Leikfélagið sjá þig.

 

Leikritið í ár heitir Allt í plati eftir Þröst Guðbjartsson og er byggt á persónum úr barnaleikritum eftir Thorbjörn Egner og Astrid Lindgren en leikstjóri verður Íris Baldvinsdóttir. Þeir sem ekki komast á fundinn en vilja vera með geta haft samband fyrir fund við formann LS Sigurlaugu Dóru í síma 8625771

Fleiri fréttir