Leikjaplan meistaraflokks komið á netið - Breytingar á Lengjubikarnum
Nú hefur leikjadagskrá meistaraflokks verði gefin út, en liðið spilar alls 15 leiki fyrir áramót og munar þar um nýtt fyrirkomulag á Lengjubikarnum. Lengjubikarinn var áður leikinn fyrir Íslandsmótið en á Körfuknattleiksþingi sem haldið var hér í Skagafirði síðastliðið vor, var fyrirkomulagi bikarsins breytt. Verður hann nú leikinn samhliða Íslandsmótinu fyrir áramót til að þétta leikjadagskrá úrvalsdeildarliða, en hún hefur þótt nokkuð gisin á köflum.
Tindastóll leikur í riðli með Snæfelli, Stjörnunni og Breiðabliki og verður spilað heima og heiman.
Leikjaniðurröðun meistaraflokks má sjá HÉR og síðan undir meistaraflokks-tenglinum á heimasvæði körfuknattleiksdeildar.
Íslandsmótið hefst föstudaginn 14. október með heimaleik gegn Stjörnunni, væntanlega verður það jafnframt vígsluleikur nýja parketgólfsins sem fyrirhugað er að leggja á íþróttahúsið á næstunni.
Af liðinu er það annars að frétta að undirbúningstímabilið er hafið með látum og hafa strákarnir verið að æfa vel undir stjórn Borce. Helstu breytingarnar frá því í fyrra eru þær að nú hefur Svavar Atli ákveðið að vera með á fullu frá upphafi og nýi leikmaðurinn, Þröstur Leó Jóhannsson, er mættur á svæðið og farinn að láta til sín taka. Helgi Rafn, Rikki og Helgi Freyr eru þarna á sínum stað og þá eru ungir og efnilegir leikmenn farnir að banka fast á dyrnar að meistaraflokki og æfa þeir með leikmannahópnum um þessar mundir.
Þá er von á erlendu leikmönnunum í kring um mánaðarmótin.
Fyrstu æfingaleikir Tindastóls eru fyrirhugaðir helgina 26. - 28. ágúst, þegar liðið heldur í keppnisferð suður yfir heiðar.